08.03.2009 10:48:26 / 9982
Í gærkveldi fórum við Jónína ó bíó að sjá myndina Marley and me. Góð mynd eftir samnefndri bók, sem við vorum búin að lesa. Myndin er um bandaríska fjölskyldu og hundinn Marley. Rétt eins og bókin þá var myndin góð, bæði hægt að hlæja og gráta. Ég mæli hiklaust með henni.
Sjonni
»
04.03.2009 21:16:58 / 9982
Við Stefán fórum áðan á handboltaleik hjá Akureyri gegn HK. Leikurinn endaði með jafntefli, Akureyri var pínu klaufalegt að vinna ekki. Þeir byrjuðu seinni hálfleikinn illa. Enn eina ferðina komu dómarar sem virðast lítið kunna til verka en þeir sennilega ekki verið skárri í allan vetur en einmitt núna, það virtist vera nokkuð gott samræmi í dómgæslunni.
En leikurinn er búinn og það þýðir víst ekkert að ergja sig lengur á honum. Það þýðir víst ekkert að ergja sig heldur á því að hafa ekki unnið fyrsta vinninginn í víkingalottóinu í kvöld, svona er lífið. Jæja ég er farinn að koma hundunum í háttinn.
Kveðja
Sjonni
E.s. fólk má gjarnan tjá sig eitthvað hérna, endilega!!
»
04.03.2009 09:26:34 / 9982
Í gær bilaði bíllinn, Raminn. Framhjóladrifið bilaði, heyrðist eins og eitthvað hefði brotnað. Svo í morgun dólaði ég á honum í bæinn á afturdrifinu, svolítið erfitt að komast upp brekkurnar en hafðist samt. Kvíði svo mest fyrir að sjá reikninginn sem verður örugglega einhverjir hundraðþúsundkallar.
Ég er farinn að skæla, bless
Sjonni
»
02.03.2009 21:23:25 / 9982
Já í kvöld skelltum við Jónína okkur í sund eftir fjós. Eftir að ég lá í heita pottinum í smá stund þá dreif ég mig út í laugina og synti heila 500 m. Alveg þokkalegt miðað við að hafa ekki farið í sund í nærri ár. Svo var skriðið aftur ofan í pottinn og slakað aðeins á áður en að við fórum heim. Ég er reyndar svolítið þreyttur eftir þetta, aðallega í ökklunum, enda var maður ekkert að synda á einhverju lulli. Það var tekið á því. Jæja bless í bili
Sjonni
»
28.02.2009 08:05:19 / 9982
Já við Jónína erum að fara í afmæliskaffi hjá systursyni mínum en hann varð 11 ára í fyrradag og svo á morgun þá eru 3,5 ár síðan við Jónína byrjuðum saman, vá hvað tíminn líður. Á sunnudaginn eftir viku, 8.mars, þá hefði Sparta heitin orðið 2 ára og síðan á María hans Stefáns bróðurs afmæli þann 9.
Bless
Sjonni
»
25.02.2009 10:00:09 / 9982
Daginn, já það er kannski ekki beint veðrið til að grilla en við ætlum nú samt að grilla þetta líka dýrindis nautakjöt, ummmmm, maður fær bara vatn í munninn við tilhugsunina. Það er alltaf verið að tala um að fólk eigi að gera eitthvað jákvætt svona yfir háveturinn og svo ekki sé nú minnst á ástandið í landinu. því hvet ég fólk til að hittast með vinum og fjölskyldum og grilla saman eða eitthvað þess háttar. Ég bara verð að hætta núna því ég verð svo svangur að "tala" um þetta.
kveðja
Sjonni
»
21.02.2009 23:22:59 / 9982
Hæ og hó, alltaf líður langur tími milli þess sem ég blogga. En nú get ég sagt að fyrir þá sem hafa einhvern áhuga á sveitalífinu hjá okkur á þá geta þeir fylgst með á grund.blogcentral.is en þar erum við Stefán bróðir að blogga um búskapinn hjá okkur. Annars er bara allt gott að frétta, Jónína fór suður um helgina að keppa í íshokkíinu og töpuðu fyrri leiknum en unnu þann seinni svo þær eru orðnar nálægt því að vinna deildina. Hundarnir okkar, Krít, Tumi og Neró, eru alltaf jafn kátir og fjörugir. Ég veit svo sem ekki hvað ég á að segja meira, mér finnst réttast að tala um það sem snýr að búskapnunm á hinu blogginu en hér að tala um mitt persónulega. En þar sem ég á mér lítið líf utan við búskapinn að þá er ekki frá miklu að segja hér. En ég verð samt að vera talsvert duglegri að blogga hér, það er nú bara kominn tími til. Svo ef þið lítið hér við næstu daga að þá er aldrei að vita nema að ég verði búinn að hripa niður einhver orð sama hversu skemmtileg lesningar þau verða.
En takk í bili og endilega tjáið ykkur ef þið lítið hér við,
Sigurjón
»
13.12.2008 18:24:31 / 9982
Sælt veri fólkið. Það eru ekki nema tíu mánuðir síðan síðast. Að sjálfsögðu er heilmikið búið að gerast á þeim tíma. Það sem eftir er af árinu endist varla til að telja upp en kannski ég nefni svona það helsta. Stefán bróðir og fjölskylda eru flutt hingað á Grund og vinnur Stefán við búið. Það er sem sagt búið að taka báðar íbúðirnar í gegn. Hvað búið sjálft varðar þá stendur til að fara að byggja við fjósið næsta vor. Svo verður líka mikil jarðrækt í gangi og bara uppbygging almennt.
Vonandi líður skammur tími þangað til næst.
»
03.02.2008 12:53:04 / 9982
Hæ, já ég veit að það er alltof langt síðan ég tjáði mig síðast og hefur margt gerst síðan þá. Það eru tveir dagar síðan við Jónína og Krít fórum til R-víkur og sóttum hund sem við ákváðum að taka að okkur. Hann er svartur labrador og heitir Bolton, er að verða 17 mánaða eftir viku. Svo erum við að fara taka annan svartan labradorhund að okkur seinna í mánuðinum, eða þegar við verðum flutt á Grund. Hann heitir Neró og er 20 dögum eldri en Bolton. Það verður sem sagt líf og fjör í sveitinni. Já það styttist sem sagt að við flytjum, það ætti að vera í þessum mánuði en ekki alveg viss með dagsetningu.
Svo er líka nóg að gera í búskapnum, enda er ég einn, að vísu kom Stefán bróðir með mér í fjós bæði á fimmtudagsmorgun og föstudagsmorgun, það munaði um það.
Jæja, ætli ég láti þetta ekki bara duga og reyni að vera duglegri að skrifa.
»
16.01.2008 22:33:16 / 9982
»
09.01.2008 21:53:26 / 9982
Já ég má ekkert vera að því að tjá mig hér. þarf að vera að vinna enda nóg að gera, var í dag og í gær að brasa í skít. Beljuskít. Svo er alltaf eitthvað, maður er aldrei búinn að vinna í sveitinni því það eru endalaus verkefni. Stundum kæmi sér vel ef það væru 50 tímar í sólarhringnum og maður þyrfti ekkert að sofa. En nú er ég einmitt að spá í að fara að hátta, það verður nóg að gera á morgun sem og alla aðra daga þangað til ég dey.
Það er gaman að sjá hvað það líta margir á bloggið mitt og ég þarf greinilega að vera duglegri, en mér þætti nú gaman ef þeir sem líta á síðuna mína væru líka duglegri að tjá sig.
»
03.01.2008 19:59:46 / 9982
Það er alltof langt síðan síðast. Maður er bara búinn að vera á fullu að vinan og svo var öll fjölskyldan hennar Jónínu hér í nokkra daga. Krít heldur áfram að stækka og henni og Spörtu finnst allataf jafn gaman að koma á Grund. Það styttist nú í að við flytjum þangað, því mér skilst að Bjarni, fyrrverandi bóndi þar, sé búinn að finna íbúð hér í bænum. Það verður reyndar eitthvað gert upp á íbúðina áður en við flytjum inn. Svo þurfum við líka að kaupa annan bíl, svo Jónína komist á milli. Bless, Krít er að gelta...
»
24.12.2007 12:30:00 / 9982
Í dag koma jólin, og allt er orðið klárt. Jónína er búin að skreyta og þrífa. Maður tekur það bara rólega um jólin og sinnir bara fjósverkum, í dag, á morgun og á annan í jólum en svo byrjar maður að vinna aftur á fullu. Það eru ekki alltaf jólin. Kýrnar hverfa ekkert þó að það séu jól. Það verður líka gaman að fylgjast með tíkunum, hvort þær skynji eitthvað að það skulu vera jól.
Gleðileg jól!
»
15.12.2007 20:21:53 / 9982
Jæja þá er fyrsta deginum mínum sem bónda á Grund að ljúka. Hann var ekki langur né erfiður, bara að fara í kvöldfjós. Á morgun byrjar dagurinn kl. 6.00 og þá þarf ég að byrja á því að huga að hundunum áður en að ég fer að mjólka, og svo finnur maður sér eitthvað að gera milli mála, áður en kvöldmjaltir byrja. Tíkurnar hafa farið með mér á Grund og koma verulega þreyttar heim. Núna áðan þegar ég gaf þeim að borða þá var klárað á mettíma og farið að sofa. En þeim finnst þetta líka alveg æðislegt að geta hlaupið um svona frjálsar.
Þetta er bara gaman.

»
15.12.2007 16:02:12 / 9982
Það er orðið. Ég er orðinn bóndi!!!
»
Síður:
1 2 3